Samantekt um þingmál

Innheimta opinberra skatta og gjalda

314. mál á 150. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja sem best réttaröryggi gjaldenda gagnvart ríkissjóði þegar kemur að innheimtu opinberra skatta og gjalda og lögfesta gildandi framkvæmd. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lögfestar verði reglur um innheimtu opinberra skatta, gjalda og sekta. Einnig er lagt til að hluti ákvæða XIII. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, flytjist yfir í þetta frumvarp með ákveðnum breytingum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á 19 öðrum lögum.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar




Síðast breytt 17.03.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.